Persónuvernd

Síðast uppfært 5. október 2026

Happí sýnir happy hour og önnur tilboð á börum og veitingastöðum. Við söfnum eins litlum upplýsingum og hægt er. Þú þarft ekki að stofna aðgang til að nota appið eða vefinn, og við seljum engar upplýsingar né notum þær í auglýsingar.

Staðsetning

Ef þú leyfir staðsetningu notar appið hana til að sýna næstu staði fyrst og hve langt er í þá. Fjarlægðin er reiknuð í símanum sjálfum. Staðsetningin þín er aldrei send til okkar né geymd. Þú getur slökkt á henni hvenær sem er í stillingum símans.

Notkunartölfræði

Við skráum nafnlaust hvaða staðir, tilboð og drykkir eru skoðaðir, til að vita hvað nýtist fólki og til að sýna stöðunum hve oft þeir eru skoðaðir. Þessar skráningar innihalda ekkert sem auðkennir þig: hvorki nafn, netfang, auðkenni tækis né staðsetningu.

Ábendingar og fyrirspurnir

Þegar þú sendir ábendingu um stað úr appinu, eða fyrirspurn á vefnum, fáum við það sem þú skrifar og mynd ef þú hengir hana við. Netfang er valfrjálst og aðeins notað til að svara þér. Við notum þetta eingöngu til að laga upplýsingar um staði og svara þér.

Aðgangar staða og stjórnenda

Eigendur staða og stjórnendur skrá sig inn á vefinn til að uppfæra upplýsingar. Fyrir þá geymum við netfang, nafn og það sem þeir skrá um staðina. Innskráningin notar nauðsynlegar vafrakökur. Við notum engar auglýsinga- eða rakningarkökur.

Hver vinnur með gögnin

Gögnin eru geymd hjá Supabase (gagnagrunnur og innskráning). Vefurinn er hýstur hjá Vercel og tölvupóstur er sendur með Resend. Kortin í appinu koma frá Apple Maps á iPhone og Google Maps á Android. Þessi fyrirtæki vinna aðeins með gögnin til að veita þjónustuna.

Réttindi þín

Þú getur beðið um að sjá, leiðrétta eða eyða upplýsingum um þig, til dæmis ábendingu sem þú hefur sent. Hafðu samband og við svörum eins fljótt og við getum. Þú getur einnig leitað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Aldur

Happí fjallar um áfengi og er ætlað fólki sem hefur náð 20 ára aldri.

Hafa samband

Ábyrgðaraðili er Helgi Freyr Davíðsson. Netfang: helgi@happí.is.